fimmtudagur, febrúar 02, 2006

Hrmppfff

Verð að fara að skrifa samviskusamlega inn í matardagbók hér á vefnum. Er farin að standa mig að því að sleppa henni og muna bara extra krossana...

En ég get sagt ykkur strax að ég svindlaði síðustu helgi. Það var alls ekki slæmt, helsta svindlið var að ég borðaði ekki fullan grænmetisskammt og fékk mér of mikið úr EXTRA (ís) (OK og plús súkkulaði )

Niðurstaðan er að ég hef ekkert lést í þessari viku og finnst mér súrt að svona ís-uppákomur skuli valda því að ekkert, alls ekkert gerist.

En nóg af böli, ég ætla bara að fara og láta verða af því að kaupa mér ÍSVÉL. Já! Svona og ekkert vesen. Ég bara læt verða af því og hætti þessu væli.

Dagurinn í dag.
mm. 1/2 banani, 5 gr klípa, 30 gr brauð, 1 egg.
hm: veit ekki ennþá :) er í mötuneyti í vinnunni og kannski svolítið erfitt að samræma það DDV en er allt að koma. Líklega brauð, síld, egg og grænmeti.
km: fiskur og stappað grænmeti
kh: 1/2 banani, jarðarberjaskammtur og súkkulaði baileyssósa

20 gr klípa
20 gr vatn
10 gr kakó
10 gr undanrennuduft
30 gr sýrður
4 dropar rjómaessens
5 dropar baileys

Hræra vel saman og láta standa aðeins og hræra aftur vel.
Svaðalega gott, út á ísinn, út á ávexti og ég hef meira að segja borðað hana eintóma þegar allt annað var búið [roðn]

Matargatið kveður í bili, er á leið í viktun eftir 30 mínútur.